2013-05-06 15:01:03
Aðalsteinn litli kútur er að vaxa upp úr fötunum sínum. Ég skellti mér í smá kaup og keypti voðalega sætt sett á drenginn.
Viltu tjá þig? [Ný föt] (2 hafa tjáð sig) [2013-05-07 18:44:22]
2013-05-03 20:10:55
Krúttlegast í heimi.
Aðalsteinn var að skoða þessa bók.....
...kemur til mín og segir "ég vill svona" og bendir á teppið á myndinni. Ég spyr hann þá hvort hann vilji teppi og þá segir hann "nei svona á gólfið" og ég spyr þá hvort við eigum að borða á gólfinu eins og þau á myndinni og hann var ekki lengi að svara því játandi. Þannig hvað gat ég annað en haft bara kvöldmatinn eins og er á myndinni. Ég náði í teppi og Aðalsteinn lagði síðan borðbúnað á teppið og fjölskyldan átti notalega kvöldstund saman að borða kvöldmatinn eins og bangsinn og fuglinn í bókinni!
Viltu tjá þig? [Lautarferð] (4 hafa tjáð sig) [2013-05-06 11:46:14]
2013-04-30 18:56:28
Það eru mjög margar uppskriftaheimasíður í gangi núna og ég hef mjög gaman að skoða margar hverjar. Fyrir helgina langaði mig í súpu með beikoni, furðuleg löngun! En ég fór að á veraldarvefinn til að leita mér af uppskrift en fann enga sem mér þótti girnileg þannig ég ákvað bara að gera kjúklingasúpuna mína og bæta beikoni við. Kjúklingasúpan mín er samanbland af nokkrum kjúklingasúpuuppskriftum. Ég mundi samt segja að grunnurinn er mestur tekin úr kjúklingasúpu sem ég fékk einu sinni hjá Auði vinkonu.
Uppskrift fyrir 6
2 lítra af soðnu vatni, sett í pott og hellann stillt á 1
2-3 kjúklingateningar (mér finnst best að setja 3)
2 gular paprikur
2 grænar paprikur
1 lauk
1 púrlauku
Sker þetta niður og steiki á pönnu með olíu og set í pottinn.
1 bréf af beikoni, steiki og klippi ofan í súpuna (Þetta er alveg nýtt hjá mér, hægt að sleppa)
4 kjúklingabringur. Sker þær niður í bita, steiki á pönnu með olíu og set karrý krydd ofan á.
Á meðan ég er að steikja allt set ég eftirfarandi ofan í pottinn:
1 askja af rjómaost (í bláu öskjunum)
1 flaska hunts chilli sósu (fæst t.d. í bónus og hagkaup)
1 mexíkóóst (kringlóttur, ég sker hann niður með rifjárni)
1 mtsk karrý
Slash af tobasco sósu
Í lokin er kjúklingurinn settur ofan í ásamt 1 pela af rjóma (hægt að nota matreiðslurjóma, ég hef notað bæði, veit ekki hvort mér finnst betra)
Læt sjóða við hæga suðu í um 20 mín.
Salt og pipar eftir smekk.
Hef síðan rifin ost, nachos, sýrðan rjóma og brauðbollur með súpunni
Mér finnst best að gera þessa súpu um morguninn. Þá er mikil ró og næði á heimilinu og ég hef þá góðan tíma í að dunda mér í þessu. Þegar ég er búin að skella kjúklingnum og rjómanum í pottinn þá slekk ég undir, set lok á og leyfi súpunni að standa allan daginn. Síðan hita ég hana upp og læt sjóða í smá tíma.
Þar sem ég var að kynnast þessari uppskrift hér: eldhussogur.com
Þá ákvað ég að prófa að hafa svona brauðbollur með súpunni og það var alveg sjúklega gott. Ég hrærði í degið áður en ég byrjaði á súpunni, lét degið hefast á meðan ég gerði súpuna og hnoðaði síðan saman bollurnar til baksturs.
Ég mæli eindregið með þessum bollum með súpum og einnig bara til að borða í kaffinu.
Viltu tjá þig? [Kjúklingasúpa með beikoni] (1 hefur tjáð sig) [2013-05-03 11:40:47]
2013-04-29 11:44:20
Kláraði loksins húfuna sem er í stíl við peysuna sem ég prjónaði á Aðalstein snemma á árinu.
Viltu tjá þig? [Húfa] (1 hefur tjáð sig) [2013-05-03 11:41:55]
2013-04-26 19:57:17
Deildin hans Aðalsteins ásamt fleiri deildum á Fífuborg var með söngatriði fyrir foreldra síðastliðna þriðjudagsmorgun. Aðalsteinn söng nú ekki mikið en fannst þetta spennandi og brosti smá til okkar. Eftir sönginn fengu foreldrar kaffi inn á deildum og kökur. Aðalsteini fannst þetta allt voðalega spennandi en samt minna spennandi þegar við þurftum að fara að vinna.
Viltu tjá þig? [Fífuborg-sýning] (Enginn hefur sagt orð)
2013-04-26 07:21:28
Það er bara þannig að það sem Sigrún les verð ég að lesa. Alveg eins og þegar við vorum litlar, ef Sigrún fékk eitthvað þá vildi ég það líka!
En allavega Vatn handa fílum fjallar um dýralækni í sirkus sem ferðast víða um. Sagan fjallar um lífið í sirkusnum og ævintýrin sem hann lenti í þar.
Fín saga og fín afþreying. Núna er ég frekar spennt að horfa á myndina sem var gerð út frá þessari mynd þar sem bæði Reese Witherspoon og Robert Pattison leika aðalhlutverk.

Viltu tjá þig? [Vatn handa fílum (9)] (Enginn hefur sagt orð)
2013-04-23 07:25:06
.....þegar ég er þreytt og búin að drekka smá hvítvín!
Röðunin á semsagt að vera í beinni röð en ekki svona niður!
Er lífið ekki bara yndislegt!
Viltu tjá þig? [Svona gerist....] (Enginn hefur sagt orð)
2013-04-22 13:16:59
Ég, María og Helga skelltum okkur í húsmæðraorlof um helgina. Við vorum búnar að ákveða að fara allavega einu sinni á ári á vorin barnlausar í ferð saman til að föndra og slúðra.
Að þessu sinni fórum við á Flúðir, fengum þar bústað sem var fínn fyrir utan smá sófaklúður. Við vorum mjög stilltar og vorum sofnaðar frekar snemma öll kvöldin og nýttum daginn vel í að sauma og borða. Ég var meiri segja það öflug að mér tókst að sauma 15 ára teppið vitlaust saman sem var frekar fyndið! Ég náði að breyta bara uppröðuninni á því þannig ég þurfti ekkert að rekja upp, það kemur mynd af því seinna!
Hér kemur smá myndasyrpa, hún segir eiginlega allt sem segja þarf um þessa ferð!
Viltu tjá þig? [Húsmæðraorlof] (2 hafa tjáð sig) [2013-04-22 20:32:57]
2013-04-19 15:17:08
Ég hef varla sest niður til að eiga rólega stund síðustu daga! Sumir dagar eru bara þannig. Allavega þá er Aðalsteinn allur að koma til, hann er enn með bólur en þær fara minnkandi með degi hverjum. Sjálf er ég að gera ótrúlega spennandi hluti í vinnunni, samt er það smá hliðarverkefni en það hefur samt stækkað heilan minn til muna!
Tók mynd af Aðalsteini í vikunni við svefnherbergishurðina okkar, tók eins mynd af honum í maí 2012 þegar Magni snéri hurðahúninum þannig að hann gæti ekki opnað hurðina. Ótrúlega gaman að sjá stærðarmuninn á Aðalsteini.
Hafið það gott um helgina lesendur góðir og munið að vera góð við hvort annað!
Viltu tjá þig? [Syngjandi hér, syngjandi þar] (1 hefur tjáð sig) [2013-04-19 16:09:46]
2010-06-03 11:25:47
22v 5d
2010-06-02 08:52:10
heima í dag að drekka 3 lítra
2010-05-29 10:05:32
22 vikur, kosningadagur og Eurovision!!!!
2010-05-28 09:45:23
21v 6d
2010-05-25 08:29:11
21v 3d
2010-05-20 10:09:58
kýs Danmörk í Eurovision
2010-05-18 08:26:38
20v 3d
2010-05-13 10:10:36
19v 5d
2010-04-28 16:08:53
bæng bæng
2010-04-27 15:37:45
Knor í knös!