Heimasíða Dagrúnar

2008-11-20 16:18:26

Jólalag

Jibbí heyrði fyrsta jólalagið mitt í morgun á leiðinni í skólann ;) Að vísu heyrði ég svo alveg 2 í viðbót...vívíví ;)

 

Viltu tjá þig? [Jólalag] (10 hafa tjáð sig) [2008-11-20 23:23:10]


2008-11-15 19:31:09

Vaknaði snemma

Ég vaknaði við þotulúðurinn í morgun....ég verð nú að viðurkenna það að ég var hrædd...var viss um að núna væri eitthvað að fara að gerast...sá bara fyrir mér war of the worlds ! !

Vettvangsnámið búið..víví. Það var nú samt rosalega gaman í þessu vettvangsnámi...skemmtilegasta hingað til og ég hef nú farið í nokkur ;) ;)

Í dag er plan að horfa á tv og sauma ;)

 

Viltu tjá þig? [Vaknaði snemma] (1 hefur tjáð sig) [2008-11-17 01:34:33]


2008-11-12 23:22:53

Hmm.....

....hvernig væri það að fara bara til Brasilíu að kenna ensku!!!

 

Viltu tjá þig? [Hmm.....] (5 hafa tjáð sig) [2008-11-20 23:21:03]


2008-11-08 10:42:17

Skrappdagur

 

Viltu tjá þig? [Skrappdagur] (5 hafa tjáð sig) [2008-11-12 08:25:15]


2008-11-07 08:53:31

Í gær....

....vá dagurinn í gær var....ég hef ekki orð yfir það !

Ég fór að kenna og átti von á kennaranum mínum úr HÍ að horfa á mig kenna og ég var jú smá stressuð fyrir það en það gekk bara rosalega vel og ég var mjög ánægð með tímann ;)

Eftir kennslu brunaði ég í bónus og keypti smá fyrir daginn í dag þvi að jú ég á að liggja bara upp í sófa og slappa af með fótinn.

Því næst fór ég í krabbameinsskoðun sem er nú ekki það skemmtilegasta sem maður gerir !

Strax á eftir það fór ég í sprautuna hjá bæklunarlækninum og ái það var sárt ! Ég bara hljóðaði mér fannst þetta svo massa sárt En sprautan gekk vel. Ég er samt ennþá brotinn og læknarnir sem meta myndirnar segja að það eigi að taka beinið bara af en bæklunarlæknirinn minn vill bíða aðeins og sjá til. Hann ætlar að prófa allt annað áður en það er gert.

Næst var fundur upp í háskóla.

Kennarinn minn sem kom að fylgjast með kennslunni vildi fá að hitta mig i næstu viku til að ræða um tímann en þar sem ég var upp í skóla í gær þá stakk ég upp á því að við mundum bara tala saman þá þannig ég var upp í skóla til um 19. Fundurinn gekk vel og ég er mjög sátt við vettvangsnámið.

Um kvöldið var ég að drepast í fætinum...það bara komu nokkur tár því að þetta var svo svakalega vont. Ég átti engin verkjalyf þannig Magni fór á veiðar eftir verkjalyfum. Ég tók pillu og fór að sofa....vaknaði svo eldsnemma í morgun og núna líður mér mun betur í fætinum.

Í dag mun ég bara liggja upp í sófa og hafa það gott...eða reyna það. Fer að vísu yfir slatta af ritgerðum og ætla að skrappa tvær síður ;)

 

Viltu tjá þig? [Í gær....] (3 hafa tjáð sig) [2008-11-07 18:47:34]


2008-11-04 19:09:37

Við setjum hægri fótinn út, hægri fótinn inn!

Ég fór til bæklunarlæknis í dag og á að fara í sprautu á fimmtudaginn....einhverju verður sprautað í liðinn sem er líklegast bara skemmdur og athuga á hvað gerist.....ég á því að taka því rólega á fimmtudaginn, föstudaginn og fram yfir helgi

 

Viltu tjá þig? [Við setjum hægri fótinn út, hægri fótinn inn!] (4 hafa tjáð sig) [2008-11-05 00:32:01]


2008-10-30 14:59:03

Hjá Sigrúnu

Ég er í blogg àtaki, verð vera duglegri að blogga!!!! Er hjà Sigrúnu að knúsa Sleppa og skottið! Fór àðan í lunch með Völu vinkonu. Maginn er að verða betri eftir magapínu gærdagsins!!!

Farinn í skólann

 

Viltu tjá þig? [Hjá Sigrúnu] (2 hafa tjáð sig) [2008-10-31 19:32:30]


2008-10-29 08:27:32

Nýjar myndir

Búin að skella inn myndunum úr veislunni hjá Magna ;) Setti líka nokkrar inn á fésið ! !

Átti æðislegt kvöld í gær með Þuríði vinkonu. Við sátum og saumuðum, borðuðum ost og horfðum á grenjumynd ;)

 

Viltu tjá þig? [Nýjar myndir] (Enginn hefur sagt orð)


2008-10-27 17:59:20

Magni master

Útskriftin hans Magna var um helgina og gekk rosalega vel. Sjálf útskriftin var í Háskólabíó frá 13-15 og eftir hana brunuðum við heim til að gera allt tilbúið fyrir veisluna. Fyrstu gestirnir komu klukkan 16 og byrjuðu svo fleiri að streyma inn alveg til klukkan 1 um nóttina. Fyrst tókum við á móti fjölskyldu okkar, höfðum kampavín og snittur og um kvöldið komu vinir og vandamenn og haldið var fjörugt partý sem endaði um þrjú leytið. Er búin að lofa vinnufélaga mömmu að setja myndir inn sem fyrst ;)

Í dag ætlaði mín sko að sofa til hádegis....nei ekki aldeilis...vaknaði hress klukkan 7 og fékk þá dellu í hausinn að telja dósir, fara í bónus og snattast eitthvað þannig ég stal bílnum í dag. Ég byrjaði á því að skutla Magna í vinnuna, kom við í bakaríi á leiðinni heim þar sem lítið skott gisti hjá mér í nótt og beið svangt heima. Þar næst dró ég skottið niður að telja með mér dósir en hún þurfti svo að fara til tannlæknis. Ég kláraði þá dósatalninguna og brunaði niður í bæ til þess að hitta skottið, slebba og barbietec. Við röltum svo niður Laugaveginn í rólegheitum, keypti jólakerti gogga, fengum okkur heita súpu á Sólon, keyptum okkur ost í ostabúðinni og fengum okkur heitt að drekka. Eftir bæjarferðina brunaði ég til mömmu að skila stólum, fór í ríkið að skila áfengi fór svo heim að ná í pening til að leggja inn á banka, fór því næst til stjána að kaupa skóhorn, í endurvinnsluna, í heimsókn til mömmu í vinnuna og svo í bónus að versla. Þegar heim kom lagðist ég upp í sófa og horfði á Samantha Who og áður en ég vissi af voru augun þyngri og þyngri og vaknaði ég eftir að þátturinn var búinn. Frábær dagur í alla staði ;)

 

Viltu tjá þig? [Magni master] (2 hafa tjáð sig) [2008-10-28 19:29:43]


2008-10-20 07:42:58

Loksins Blogg

Það er svo mikið að gera hjá mér að ég hef ekki haft tíma að blogga.

Við Magni fórum á laugardaginn og keyptum okkur húsgögn ;) Núna er íbúðin öll að lifna við. Sófinn okkar mun ekki koma á næstunni þar sem skipið er fast við höfn á Ítalíu og fær ekki að koma til Íslands....ég krossa bara putta að hann komi fyrir jól ;)

Ein vika af vettvangsnámi búin....4 eftir....þetta á eftir að líða hratt.

Ég fékk afmælisgjöf í gær. Þuríður kom með köku og bleika sokka sem hún prjónaði handa mér, rosa flottir ;) Takk kæra vinkona ;)

Þessi vika er orðin vel bókuð hjá mér, mikið að gera fyrir útskriftina hans Magna.

 

Viltu tjá þig? [Loksins Blogg] (3 hafa tjáð sig) [2008-10-27 07:40:47]


Næsta síða